Aðalvalmynd

Könnun

Hvernig á tónlistar þema þessarar síðu eftir að standa sig?!

Áslaugar blogg :)

21. nóvember 2006 klukkan 04:56
Hæló :*


Ég ætla að vera allveg gífulega dugleg og blogga tvisvar í sömu vikunni.
Einu sinni fyrir mig og einu sinni fyrir Frifþjóf.

Þessi færsla gæti komið öll í hrúgu þar sem enter takkinn minn er bilaður!

Það er svosem ágætt, ætla ekki að láta einhvern helvítis enter takka stöðva mig!

Yes, anyway þá var ég að klára Saw III. Ég verð þó að viðurkenna að það var ekki langt í tárin. Sat inn í tölvuherbergi með hendur fyrir andliti og hjartað niðrí sokkum, vonast til að þetta hætti sem fyrst.

Svo kíkti ég nú á aðra ágætis mynd sem ég fékk hjá Frifþjófi mínum, hún var ágæt ég lýg því ekki.
Tárin hurfu og perraglottið laumaðist á andlitið :)
Annars er ég ekki búin að gera kúk í dag, skemmti mér svona ansi vel í skólanum, Miss president hér á ferð :$

Ætlaði svo að fara að versla, sama þótt ég færi með einhverjum eða þyrfti að drullast ein, en það nennti nú ekki nokkur maður að skutla mér svo ég sat heima í fýlu. Ef það hefði ekki verið svona mikill snjór úti hefði ég örugglega þrjóskast til að labba ein upp í Smáralind og verslað fyrir allann minn pening! Sama hvað það kostaði.


Gaur, takkinn var ekkert bilaður. Anyway, skiptir ekki. Núna enterast þó :D

Mig langar líka að óska henni Emmu til hamingju með bílprófsdótið sem hún var að ná :* Og heita kakóið, best í heimi.

Farðu bara varlega stelpa.

En ég er samt aldrei góð í þessu fle-i svo ég held ég fari bara að segja þetta gott. 
Poppkorn, djús, sæng og Andrés önd.. gerist ekki betra.


Sofiði vel elskurnar mínar og munið að bursta tennurnar :*


By the way- Ég teiknaði hana sjálf 

 © Áslaug María Jóhannsdóttir
Friðþjófur Blöndal.

''Er allt að verða svolítið þreytt''

13. október 2006 klukkan 22:12
Jæja komið að smá nöldri, er bara allt að verða þreytt? Skólinn að verða mjög þreyttur eftir annars mína bestu önn í flensborg, fótboltinn ekkert spes en getur verið alltílagi, og bara eitthvernveginn allt farið að verða leiðinlegt og ekkert sem getur kætt mann?, það held ég, eina skemmtilega sem maður gerir þessa dagana er að spila á trommurnar og kannski hitta vinina:S=/ dapurt ekki satt
Friðþjófur Blöndal.

Blogg hvað?

25. ágúst 2006 klukkan 21:52

Veit ég er ekkert búinn að vera að blogga neitt uppá síðkastið en minn tími mun koma ég lofa því. Nenni ekki neinu núna en þetta kemur!

Friðþjófur Blöndal.

''Jæja''

31. júlí 2006 klukkan 21:31

Nýr dálkur á síðunni ''Hljómsveitir'' Þar mun ég telja upp þá tónlist sem ég hlusta mest á og mínar uppáhalds hljómsveitir, og fjalla stuttlega um þær sem standa hæst uppúr hjá mér. Vona að þetta vekji eitthvern áhuga og ef svo er endilega spyrjið meira og ég reyni að svara því sem ég get.

Friðþjófur Blöndal.

Ath!!

14. júlí 2006 klukkan 21:14
Prófa eitthvað Nýtt!



''Jæja loksins það sem ''allir'' hafa beðið eftir ætla taka eitt gott fínt og flott blogg hérna. Hehe ég hef ákveðið að láta þessa síðu taka nýa stefnu, sem sagt gera hana bara eftir mínu höfði og stað þess að vera að infylla ykkur með því ómerkilega sem drífur á mína daga þá ætla ég að deila með ykkur því sem kannski einkennir mig einna helst tónlist, ég held það koma vonandi fæstum á óvart að ég ætla að breyta til hérna því eins og flestir ættu að sjá þá er ég ekki merkilegur bloggari og lítið gaman að lesa hvað ég geri dags daglega. En þetta myndi þá vera eitthvað í þeim dúr að ég myndi segja ykkur hvað væri í gangi hjá mér í sambandi við tónlist að hverju sinni og í tónlistar heiminum yfir höfuð, þó svo ég myndi aðallega taka til rokk, þunga rokk, metal, og uppúr þá vona ég að eitthverjir hafi samt áhuga á að lesa hérna. En eins og ég segji ég er bara að prófa og þó ég hafi ekki mikla trú á sjálfum mér í sambandi við þetta þá vona ég að þetta gangi betur en þetta hefur gengið hingað til og efa ég það ekki, því það er varla hægt að verða verri en þetta.''

''Með von um að þið takið vel í þetta Friffi-*''


Friðþjófur Blöndal.

Biðin á enda...blogg!

28. júní 2006 klukkan 07:54
Jæja þá er sumarskólinn að klárast á morgun. Fer í stæ próf kl. 18 uppi í Háskóla og rústa því náttúrulega er búinn að vera svo helvíti Rocky!Svalur Í kvöld eyddi ég tíma mínum í að tala við skemmtilegustu mannveru veraldar ekki slæmt það. Allavega, tónleikar á föstudagskvöldið á Grandrokk, allir þangað. Glottandi Svo er ég að fara að versla á fimmtudaginn kominn tími til ha...Svo var ég að spá í að skella mér til Hollywood og gerast heimsfrægur magadansari þar en til að byrja með myndi ég vinna fyrir mér sem trúður í barnaafmælum og svoleiðis skemmtilegheitum. Brosandi En áður en ég fer að meika það sem magadansari, og sýna heiminum mína ómetanlegu hæfileika á því sviði, ætla ég að halda mig við hljómsveitina bara og boltann. Gengur vel btw í boltanum, erum í 2. sæti eins og er. Glottandi En allavega Eyrún ég er alltaf að blogga farðu bara sjálf að blogga! Skuldar mér eitt sjóðheitt blogg Glottandi Over and out

Friðþjófur Blöndal.

Gaman!

05. júní 2006 klukkan 18:03
Jæja sit hérna heima nývaknaður sem er jú fínt, annar í hvítasunnu í dag ég veit ekki, einn af þessum leiðinlegum dögum ársins sem þurfa jú auðvitað líka að vera til. Það sem búið er að vera að gerast hjá mér undanfarna daga er nú kannski ekki endilega mikið en allavana búið að ganga vel í boltanum búnir að vinna þrjá í röð í íslands mótinu og búnir að vinna einn í bikarnum, og gengur allt mjög vel hjá okkur sem er bara af hinu góða.
Vorum að byrja aftur að æfa í Atrum eftir smá pásu, erum að fara að spila á akureyri 16. júní en komum aftur í bæinn samt 17., get ekki sagt annað en að mig hlakki helvíti mikið til langt síðann við spiluðum live síðast , desember ef ég man rétt og líka það að síðast þegar við spiluðum á akureyri var það ógeðslega gaman. ( www.myspace.com/atrumiceland tékkit  )
Annars er maður bara búinn að vera mikið á fótbolta æfingum, vinna og svo auðvitar sumarskólanum=/ kannski ekkert spes en ég verð búinn með þennann blessaða sumarskóla í lok júní þannig þá tekur sumarið nýa stefnu=] held þetta verði gott sumar ef ekki bara það besta hingað til=] En jæja ég nenni ekki meir=]

Friffi-* Bye Bye,,

Smá Myndir Komnar sem komu ekki síðast=)
Friðþjófur Blöndal.

''Nýtt''

29. maí 2006 klukkan 01:46

Jæja loksins, prófa að gera eitthvað nýtt á þessari blessuðu síðu, allavana þegar þið sjáið þetta blogg þá vonandi verða komnar eitthverjar myndir og eitthvað sniðugt=]


Eeeeeen Burt séð frá því þá ætla ég að koma með eitt af mínum ómerkilegu bloggum=] Ég er byrjaður að vinna á fullu og það er fínt en getur verið erfitt, því við vinnum lengi og sum verkefnin geta verið erfið=/ en í gærdag/kveldi réttara sagt frá klukkan 7 í gærmorgun til klukkan að verða 00:00 var ég að vinna á kjörstað í áslandinu og var það fínt eða allavana mjög slakandi og tala nú ekki um vel borgað. Ég byrja í sumarskólanum á morgun og hlakka ekkert ''SMÁ'' til:D:D:D:D:D:D, fokk mig langar til að deya!
Íslandsmótið er byrjað og jájá gengur fínt hjá okkur gerðum 2-2 jafntefli á móti Þrótti Rvk, og unnum Fjölni Rvk 5-4, fyrsti leikurinn í bikarnum hjá okkur er á þriðjudaginn og þá eigum við breiðablik uppi á breiðabliksvelli.

Hef voðalega lítið fleira að segja í bili enda held ég að þetta sé yfirdrifið nóg! takk takk=]

friffi-*

Friðþjófur Blöndal.

Hóhó, Alltaf að blogga!

11. maí 2006 klukkan 19:39

   ''Jú jú byrja að vinna á morgun!''

Gott fólk, vont fólk jú ég byrja að vinna á morgun, fyrirtækið sem ég vinn fyrir heitir ekki ómerkilegra nafni heldur en fagtak og er verktaki sem sér jú um stæðstu bygginguna hér á völlunum. Ég fór og hitti vinnuveitanda minn áðann fínn gæji, á að mæta í vinnuna klukkan hálf átta í fyrramálið og vinn til hálf fimm, sem sagt níu tíma vinnudagur sem er slatti langt að mínu mati því ég held þetta sé ekkert auðvelt heldur. En jú það er nú víst þannig að peningar ganga fyrir flest öllu og ætli það sé nú ekki ástæðan fyrir því að maður er að þessu =S En þetta verður fínt prófa eitthvað nýtt þannig ég get ekki sagt annað en að mig hlakki bara svolítið til að fara að vinna í fyrramálið.

Friff-*=], Mér finnst ég bara helvíti naskur á bloggin hérna,=]

Friðþjófur Blöndal.

Fimmtudags Morgunn!

04. maí 2006 klukkan 16:43


Var að vakna og djöfull held ég að ég hafi aldrei verið jafn þreyttur á allri minni ævi, en það sp. víst einginn að því. En jæja nú er ég búinn með eðlis og efna fræði og líka stærðfræði haldiði að það sé munur=] mér finnst ég vera búinn í prófum skrítið en það er bara ísl og ensk eftir þannig þetta er svona frekar þægilegt bara. En já eins og áður kom fram þá var ég að vakna ég veit ekki alveg hvað ég geri í dag, ætla allavana að tékka hvort það sé eitthver æfing og ef ekki þá ætla ég að reyna að gera eitthvað skemmtilegt í dag:) En ef það er æfing þá tjilla ég líka bara fram að æfingu og sé svo til hvað ég geri=] Nenni ei meir=]

Friffi=]
Friðþjófur Blöndal.

Auglýsing